Fyrirtækið

Nýja sendibílastöðin
  • Knarrarvogi 2
  • 104 Reykjavík
  • Kt: 490269-0969
  • Sími: 568 5000
  • Netfang:

Um okkur

Árið 1949 tóku menn sig saman og hófu þann atvinnurekstur að aka sendibílum. Ástæða þess að stofnaðar voru sendibílastöðvar voru meðal annars ákvæði sem vörubílstjórar settu inn í samninga sína, á árunum eftir síðari heimstyrjöldina, að þeim bæri eigi skylda til að hjálpa til við hleðslu eða losun bílanna. Þetta atriði opnaði augu margra fyrir því að stofna sendibílastöðvar sem hefði það að markmiði að þjónusta fólk og aðstoða við allskonar flutninga, stóra sem smáa.

Hópur sendibílstjóra stofnuðu Nýju Sendibílastöðina þann 2. febrúar 1950. Nýja Sendibílastöðin var fyrst til húsa í Aðalstræti 16 í Reykjavík, en síðar eða árið 1984 var flutt að Knarrarvogi 2 í Reykjavík í myndarlegt hús sem bílstjórar byggðu, og hefur Nýja Sendibílastöðin haft aðsetur þar síðan. Fyrsti framkvæmdastjórinn var Jón Bergþórsson sem starfaði sem stöðvarstjóri N.S. til ársins 1994. Síðan þá hafa nokkrir gegnt stöðu stöðvar-/framkvæmdastjóra, og frá árinu 2006- 2025 gengdi Þórður Guðbjörnsson því starfi. Í dag starfar María Ósk Jónsdóttir sem framkvæmdastjóri stöðvarinnar.

Nýja Sendibílastöðin hefur ávallt leitast við að veita sem allra besta og fjölbreytilegasta þjónustu í öllum flutningum, stórum sem smáum. Viðskiptavinirnir bera fram óskir sínar og bílstjórar Nýju Sendibílastöðvarinnar gera sitt besta til að verða við þessum óskum. Persónuleg og ábyrg þjónusta er markmið Nýju Sendibílastöðvarinnar – þjónusta í þína þágu.

Þann 2. febrúar 2025 fagnaði Nýja Sendibílastöðin 75 árin. Einkunnarorð stöðvarinnar hefur alltaf verið: – traustir bílstjórar á traustum grunni –.

Hér að neðan má sjá mynd af aðsetri stöðvarinnar í árdaga, þegar hún var staðsett við Miklatorg. Einnig er mynd af staðsetningu stöðvarinnar í dag.

Starfsfólk

Starfsfólk á skrifstofu
  • María Ósk Jónsdóttir, framkvæmdastjóri
  • Auður Jóna Heiðarsdóttir, þjónustufulltrúi
Staðsetning skrifstofu
  • Knarrarvogi 2, 104 Reykjavík
  • Sími: 568 5000.

Stjórn

Formaður
  • Magnús H. Guðmundsson (92)
Meðstjórnendur
  • Hilmir Þór Einarsson (56)
  • Guðlaugur Hjaltason (36)

Bílstjórar

Bílstjóri Stærð á flutningsrými Sími
Árni Björnsson 823-1564
Brynjar Tómasson 868-2442
Daníel Gunnars Jónsson 863-7150
Daníel Kári Pétursson 661-1375
Einar J. Traustason 894-3707
Ellert Jón Þorgeirsson 832-3737
Eric T Baldvinsson 824-2172
Gísli Þór Gíslason 823-8848
Gunnar Gunnarsson 864-4254
Jósef Kim Hreinsson 698-9858
Karl B Reynisson 860-7888
Kristinn Jónsson 662-6475
Kristján V. Steingrímsson 850-3308
Rafn Árnason 863-1193
Sigurjón M. Ólafsson 840-7069
Smári Ingvarsson 892-1039
Sæmundur Sverrisson 841-1000
Valgeir Sveinsson 823-6855
Þórður Lárusson 864-4182
Litlir kassabílar m/lyftu – 14-20 m3 Stærð á flutningsrými Sími
Ásgeir Steinarsson 869-3741
Gunnar Jensen 695-2589
Gunnar Ólafsson 775-0022
Hilmir Þór Einarsson 659-8889
Níels Arnar Níelsson 866-7693
Númi Snær Jóhannesson 698-0961
Ólafur G. Gunnarsson 896-1015
Pálmi Linn 699-0167
Pétur Jóhannesson 696-8886
Sófus Alexandersson 892-1002
Tómas Sigurðsson 845-5155
Stórir lyftubílar Stærð á flutningsrými Sími
Ari Freyr Sveinbjörnsson 892-6363
Björgvin Steingrímsson 893-4663
Guðlaugur Hjaltason 888-1500
Haukur Birgisson 892-3905
Heiðar S. Ellertsson 772-8655
Hjörtur Jóhannsson 868-7899
Jón Gísli Guðlaugsson 862-5600

Gjaldskrá

1.Fl. 3.Fl. 4. fl. 5.Fl. 6.Fl. 7.Fl. 8.Fl 9.Fl
Öll verð eru m/ vsk 0-10m3 10-14m3 10-14m3 14-20m3 20-25m3 25-30m3 30-35m3 35-40m3
3-4 tonn 4-5 tonn 5-7 tonn 7+ tonn
Startgjald 2.120 2.490 3.000 3.470 3.600 3.785 3.920 4.490
Tímagj. Í dagv. 10.490 13.120 14.440 16.500 17.340 18.120 18.950 21.445
Tímagj. í næturv 13.120 16.400 18.030 20.620 21.595 22.645 23.700 25.445
Kílómetri í dagv. 320 390 450 520 540 560 590 660
Kílómetri í næturv. 480 650 680 760 820 850 880 980

Næturvinna gildir frá kl. 17.00 – 08.00 á virkum dögum og um helgar.

ATH. Vöruflutningar sem falla undir ADR reglugerðina eru með 15% álag

 

 

Píanó/flygil flutningar
  • Píanó/Þungaflutningar kr. 80.000,- viðmiðunargjald
  • Flygill kr. 120.000.- viðmiðunargjald ( flutningur á píanóum og flyglum miðast yfirleitt við 4 menn með píanóbönd)

Allar frekari upplýsingar eru veittar í síma 568 5000 eða ns@sendibilar.is

15. janúar 2025.
Öll verð eru birt með fyrirvara um prentvillur. Nýja Sendibílastöðin áskilur sér rétt til verðbreytinga án fyrirvara.

 

Persónuvernd

Persónuverndaryfirlýsing
Nýja Sendibílastöðin

Almennt

Nýju Sendibílastöðinni kt. 490269-0969, Knarravogur 4, 104 Reykjavík („stöðin“), er annt um friðhelgi einstaklinga og tekur persónuvernd mjög alvarlega. Nýja Sendibílastöðin leggur mikla áherslu á að meðferð persónuupplýsinga sé ávallt í samræmi við gildandi persónuverndarlöggjöf. Í þessari persónuverndaryfirlýsingu má sjá hvaða persónuupplýsingum Nýja Sendibílastöðin safnar um einstaklinga og í hvaða tilgangi. Þá má hér finna upplýsingar um aðra viðtakendur upplýsinganna og hvað þær eru geymdar lengi. Auk þess má hér finna upplýsingar um á hvaða grundvelli Nýja Sendibílastöðin safnar persónuupplýsingum, hvaða réttinda einstaklingar njóta og fleiri mikilvægar upplýsingar sem tengjast lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018 (hér eftir persónuverndarlög).

Hvað eru persónuupplýsingar og vinnsla persónupplýsinga?

Með persónuupplýsingum er átt við allar upplýsingar sem hægt er að rekja til tiltekins einstaklings, svo sem upplýsingar um nafn, kennitölu, heimilisfang, netfang, símanúmer, fjárhag, heilsufar, IP tölu og fleira. Í 2. og 3. tl. 1. mgr. 3. gr. persónuverndarlaga er að finna nánari skilgreiningu á persónuupplýsingum. Með viðkvæmum persónuupplýsingum er átt við persónuupplýsingar sem njóta sérstakrar verndar samkvæmt persónuverndarlögum s.s. upplýsingar um þjóðernisuppruna eða kynþátt, stjórnmála- og trúarskoðanir, stéttarfélagsaðild, erfðagögn, heilsu, kynlíf eða kynhneigð. Með vinnslu persónuupplýsinga er átt við alla meðferð og notkun persónuupplýsinga svo sem söfnun, skráningu, varðveislu, breytingu eða eyðingu. Í 4. tl. 1. mgr. 3. gr. persónuverndarlaga er að finna nánari skilgreiningu á vinnslu persónuupplýsinga.

Hvernig vinnur Nýja Sendibílastöðin persónuupplýsingar?

Hjá Nýja Sendibílastöðinni fer vinnsla persónuupplýsinga fram á lögmætum grundvelli og í samræmi við persónuverndarlög. Nýja Sendibílastöðin gætir jafnframt að því að persónuupplýsingar séu ekki unnar frekar á þann hátt að vinnslan sé ósamrýmanleg upprunalegum tilgangi vinnslunnar. Nýja Sendibílastöðin gætir að því að farið sé að eftirfarandi meginreglum: 1) Að persónuupplýsingar séu unnar með sanngjörnum hætti. 2) Að persónuupplýsingum sé einungis safnað í skýrum tilgangi. 3) Að ekki sé safnað meiri persónuupplýsingum en nauðsynlegt er. 4) Að persónuupplýsingar séu nákvæmar og uppfærðar þegar þörf krefur. 5) Að persónuupplýsingar séu ekki geymdar lengur en þörf er á. 6) Að gætt sé að öryggi persónuupplýsinga með viðeigandi varúðarráðstöfunum.

Sjálfvirk ákvarðanataka

Sjálfvirk ákvarðanataka er það ferli þegar tekin er ákvörðun með sjálfvirkum hætti án nokkurrar mannlegrar aðkomu. Slíkar ákvarðanir geta verið byggðar á persónusniðum, þ.e. þegar persónuupplýsingar eru notaðar til að meta ákveðna þætti er varða hagi einstaklings, einkum að greina eða spá fyrir um þætti er varða frammistöðu hans í starfi, fjárhagsstöðu, heilsu, o.fl. Dæmi um sjálfvirka ákvarðanatöku væri ef ákvörðun um lánveitingu í gegnum vefsíðu byggði eingöngu á lánshæfismati. Ekki fer fram sjálfvirk ákvarðanataka við vinnslu persónuupplýsinga hjá okkur.

Um hverja safnar Nýja Sendibílastöðin persónuupplýsingum?

Í starfsemi stöðvarinnar er nauðsynlegt að safna og vinna með persónuupplýsingar um mismunandi hópa einstaklinga. Þær persónuupplýsingar sem stöðin hefur undir höndum geta verið um starfsmenn þess, viðsemjendur, viðskiptavini, setu einstaklinga í stjórnum félaga, eignarhald á fasteignum og aðra þriðju aðila sem nauðsynlegt er að eiga samskipti við.

Hvaða persónuupplýsingum safnar Nýja Sendibílastöðin?

Nýja Sendibílastöðin safnar ólíkum persónuupplýsingum um mismunandi hópa einstaklinga eftir því um hvaða starfsemi er að ræða. Undir öllum kringumstæðum leitast Nýja Sendibílastöðin við að safna einungis þeim persónuupplýsingum sem nauðsynlegar eru með hliðsjón af tilgangi vinnslunnar. Í ákveðnum tilvikum þurfum að safna viðkvæmum persónuupplýsingum, svo sem upplýsingum um heilsufar og aðild að stéttarfélagi starfsmanna. Sérstök aðgát er höfð við meðferð slíkra upplýsinga. Við söfnum og vinnum með eftirfarandi flokka persónuupplýsinga um umsækjendur, viðskiptavini, birgja, fyrrverandi og núverandi starfsfólk: • grunnupplýsingar (nafn, heimilisfang, netfang o.fl.) • andlitsmynd • stéttarfélagsaðild • bankaupplýsingar • skattaupplýsingar • upplýsingar

  • úr starfsumsókn
  • úr ráðningarsamningi
  • úr tímaskráningu
  • um launagreiðslur
  • um heilsufar
  • úr tölvupóstssamskiptum
  • um orlof
  • um meðlagsgreiðslur

  • um verkefnastöðu

  • úr frammistöðukönnunum
  • úr starfsmannasamtölum
  • um ástæðu áminningar/uppsagnar
  • úr um símanotkun (lengd og tímasetning símtala)
  • um námskeiðssókn
  • um tjónsviðburði

Nýja Sendibílastöðin safnar og vinnur með eftirfarandi flokka persónuupplýsinga um starfsmenn, leigutaka og birgja:

Tölvupóstssamskipti

Við notum m.a. tölvupóst til að eiga í samskiptum við umsækjendur, viðskiptavini og tengiliði birgja og söfnum í þeim tilgangi tengiliðaupplýsingum ásamt samskiptunum sjálfum.

Samningar

Í þeim tilgangi að gera samninga við landeigendur og aðra leigutaka, söfnum við grunnupplýsingum um þá.

Reikningagerð

Í þeim tilgangi að senda út reikninga og innheimta greiðslur söfnum við grunnupplýsingum um leigutaka ásamt reikningsupphæð.

Viðskiptamannaskrá

Í þeim tilgangi að halda skrá um núverandi og fyrrverandi viðskiptavini (birgja) okkar ásamt viðskiptasögu, söfnum við grunnupplýsingum um þá.

Tilgangurinn með söfnun persónuupplýsinga

Tilgangurinn með söfnun upplýsinganna er að: • Geta efnt samningsskyldu, til dæmis við starfsmenn. • Geta veitt ákveðna þjónustu. • Gæta að lögmætum hagsmunum. • Gæta að lögmætum hagsmunum annarra. • Uppfylla lagaskyldu.

Lagagrundvöllur fyrir vinnslu persónuupplýsinga

Nýja Sendibílastöðin safnar og vinnur persónuupplýsingar á eftirfarandi lagagrundvelli: ● Til að uppfylla lagaskyldu. ● Til að uppfylla samningsskyldu. ● Á grundvelli samþykkis einstaklinga. ● Til að unnt sé að stofn, hafa uppi eða verja réttarkröfu.

Hve lengi geymir Nýja Sendibílastöðin persónuupplýsingar?

Stöðin geymir persónuupplýsingar einungis í þann tíma sem nauðsynlegt er fyrir fyrirtækið að hafa þær undir höndum. Þegar ekki er þörf fyrir að hafa persónuupplýsingar undir höndum lengur eyðir fyrirtækið þeim með öruggum hætti.

Frá hverjum safnar Nýja Sendibílastöðin persónuupplýsingum?

Þá safnar Nýja Sendibílastöðin að meginstefnu til persónuupplýsingum beint frá þeim einstaklingum sem um ræðir en styðst einnig við opinberar skrár og upplýsingar frá öðurm stjórnvöldum í vinnslu sinni. Þegar og ef upplýsingum er safnað frá öðrum þriðju aðilum reynir stofnunin eftir fremsta megni að upplýsa viðkomandi um það.

Hvenær miðlar Nýja Sendibílastöðin persónuupplýsingum til þriðju aðila og af hverju?

Nýja Sendibílastöðin miðlar persónuupplýsingum til þriðju aðila sem eru ráðnir af stofnuninni til að vinna fyrir fram ákveðna vinnu, svo sem þjónustuveitendur, sem sjá um að geyma gögn meðal annars og verktakar. Í þeim tilfellum gerir stofnunin vinnslusamning við viðkomandi aðila. Slíkur samningur kveður meðal annars á um skyldu hans til að fylgja fyrirmælum stofnunarinnar um meðferð persónuupplýsinga og er honum óheimilt að nota þær í öðrum tilgangi. Jafnframt ber honum skylda til að tryggja öryggi upplýsinganna með viðeigandi hætti. Í öðrum tilvikum getur einnig verið nauðsynlegt fyrir stöðina að miðla persónuupplýsingum til þriðju aðila, til dæmis þegar skylda stendur til þess samkvæmt lögum

Flutningur persónuupplýsinga út fyrir Evrópska efnahagssvæðið

Nýja Sendibílastöðinni er kunnugt um að ströng skilyrði gilda um flutning persónuupplýsinga til ríkja sem staðsett eru utan Evrópska efnahagssvæðisins. Nýja Sendibílastöðin gerir það ekki undir neinum kringumstæðum nema fullnægjandi heimild standi til þess samkvæmt lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018.

Öryggi persónuupplýsinga

Nýja Sendibílastöðin leitast við að grípa til viðeigandi tæknilegra og skipulegra öryggisráðstafana til að tryggja öryggi persónuupplýsinga í samræmi við lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018. Felur það meðal annars í sér að aðeins þeir starfsmenn hafa aðgang að persónuupplýsingum sem þess þurfa starfs síns vegna. Auk þess stuðlar stöðin að aukinni vitundarvakningu hjá starfsmönnum með reglulegri þjálfun og fræðslu um hvernig gæta skal að öryggi persónuupplýsinga.

Réttindi einstaklinga

Hafi einstaklingar veitt samþykki fyrir vinnslu tiltekinna persónuupplýsinga eiga þeir rétt samkvæmt lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018 að afturkalla samþykki sitt hvenær sem er. Sá réttur hefur þó ekki áhrif á lögmæti þeirrar vinnslu sem fram fór áður en samþykki var afturkallað. Þá njóta þeir einnig annarra réttinda, svo sem réttar til að vera upplýstir um vinnslu, réttar til aðgangs að gögnum, réttar til að fá rangar eða villandi upplýsingar leiðréttar, réttar til að persónuupplýsingum verði eytt, réttar til að hindra að unnið verði með persónuupplýsingar um þá og réttar til að flytja eigin upplýsingar. Hafa skal í huga að réttindi einstaklinga eru ekki alltaf fortakslaus og kunna að vera háð ýmsum skilyrðum.

Samskiptaupplýsingar Nýju Sendibílastöðinnar

Nafn: Nýja Sendibílastöðin Heimilisfang: Knarravogi 4, 104 Reykjavík. Netfang: ns@sendibilar.is Símanúmer: 568 5000.

Persónuverndarfulltrúi

Hafi einstaklingar frekari spurningar um persónuverndaryfirlýsingu þessa geta þeir ávallt haft samband við persónuverndarfulltrúann okkar. Þetta eru samskiptaupplýsingarnar hjá honum: Nafn: Dattaca Labs Iceland ehf. Heimilisfang: Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík. Netfang: dpo@dattacalabs.com.
Símanúmer: 517 3444.

Réttur til að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd

Dragi einstaklingar í efa að Nýja Sendibílastöðin meðhöndli persónuupplýsingar þeirra í samræmi við lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018 hafa þeir rétt til að senda erindi til Persónuverndar (www.personuvernd.is).

Endurskoðun á þessari persónuverndaryfirlýsingu

Persónuverndaryfirlýsing þessi getur frá einum tíma til annars tekið breytingum í samræmi við breytingar á viðeigandi lögum og reglugerðum eða ef breytingar verða gerðar á því hvernig Nýja Sendibílastöðin vinnur með persónuupplýsingar. Verði breytingar gerðar á persónuverndaryfirlýsingu þessari verður tilkynnt um slíkt á heimasíðu stofnunarinnar www.sendibilar.is
Eftir að breytingar hafa verið gerðar á persónuverndaryfirlýsingu taka þær gildi þegar uppfærð útgáfa hefur verið birt. Persónuverndaryfirlýsing þessi var samþykkt 13.09.2021.