Árið 1949 tóku menn sig saman og hófu þann atvinnurekstur að aka sendibílum. Ástæða þess að stofnaðar voru sendibílastöðvar voru meðal annars ákvæði sem vörubílstjórar settu inn í samninga sína, á árunum eftir síðari heimstyrjöldina, að þeim bæri eigi skylda til að hjálpa til við hleðslu eða losun bílanna. Þetta atriði opnaði augu margra fyrir því að stofna sendibílastöðvar sem hefði það að markmiði að þjónusta fólk og aðstoða við allskonar flutninga, stóra sem smáa.
Hópur sendibílstjóra stofnuðu Nýju Sendibílastöðina þann 2. febrúar 1950. Nýja Sendibílastöðin var fyrst til húsa í Aðalstræti 16 í Reykjavík, en síðar eða árið 1984 var flutt að Knarrarvogi 2 í Reykjavík í myndarlegt hús sem bílstjórar byggðu, og hefur Nýja Sendibílastöðin haft aðsetur þar síðan. Fyrsti framkvæmdastjórinn var Jón Bergþórsson sem starfaði sem stöðvarstjóri N.S. til ársins 1994. Síðan þá hafa nokkrir gegnt stöðu stöðvar-/framkvæmdastjóra, og frá árinu 2006- 2025 gengdi Þórður Guðbjörnsson því starfi. Í dag starfar María Ósk Jónsdóttir sem framkvæmdastjóri stöðvarinnar.
Nýja Sendibílastöðin hefur ávallt leitast við að veita sem allra besta og fjölbreytilegasta þjónustu í öllum flutningum, stórum sem smáum. Viðskiptavinirnir bera fram óskir sínar og bílstjórar Nýju Sendibílastöðvarinnar gera sitt besta til að verða við þessum óskum. Persónuleg og ábyrg þjónusta er markmið Nýju Sendibílastöðvarinnar – þjónusta í þína þágu.
Þann 2. febrúar 2025 fagnaði Nýja Sendibílastöðin 75 árin. Einkunnarorð stöðvarinnar hefur alltaf verið: – traustir bílstjórar á traustum grunni –.
Hér að neðan má sjá mynd af aðsetri stöðvarinnar í árdaga, þegar hún var staðsett við Miklatorg. Einnig er mynd af staðsetningu stöðvarinnar í dag.
Bílstjóri | Stærð á flutningsrými | Sími |
---|---|---|
Árni Björnsson | — | 823-1564 |
Brynjar Tómasson | — | 868-2442 |
Daníel Gunnars Jónsson | — | 863-7150 |
Daníel Kári Pétursson | — | 661-1375 |
Einar J. Traustason | — | 894-3707 |
Ellert Jón Þorgeirsson | — | 832-3737 |
Eric T Baldvinsson | — | 824-2172 |
Gísli Þór Gíslason | — | 823-8848 |
Gunnar Gunnarsson | — | 864-4254 |
Jósef Kim Hreinsson | — | 698-9858 |
Karl B Reynisson | — | 860-7888 |
Kristinn Jónsson | — | 662-6475 |
Kristján V. Steingrímsson | — | 850-3308 |
Rafn Árnason | — | 863-1193 |
Sigurjón M. Ólafsson | — | 840-7069 |
Smári Ingvarsson | — | 892-1039 |
Sæmundur Sverrisson | — | 841-1000 |
Valgeir Sveinsson | — | 823-6855 |
Þórður Lárusson | — | 864-4182 |
Litlir kassabílar m/lyftu – 14-20 m3 | Stærð á flutningsrými | Sími |
---|---|---|
Ásgeir Steinarsson | – | 869-3741 |
Gunnar Jensen | – | 695-2589 |
Gunnar Ólafsson | – | 775-0022 |
Hilmir Þór Einarsson | – | 659-8889 |
Níels Arnar Níelsson | – | 866-7693 |
Númi Snær Jóhannesson | – | 698-0961 |
Ólafur G. Gunnarsson | – | 896-1015 |
Pálmi Linn | – | 699-0167 |
Pétur Jóhannesson | – | 696-8886 |
Sófus Alexandersson | – | 892-1002 |
Tómas Sigurðsson | – | 845-5155 |
1.Fl. | 3.Fl. | 4. fl. | 5.Fl. | 6.Fl. | 7.Fl. | 8.Fl | 9.Fl | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Öll verð eru m/ vsk | 0-10m3 | 10-14m3 | 10-14m3 | 14-20m3 | 20-25m3 | 25-30m3 | 30-35m3 | 35-40m3 |
3-4 tonn | 4-5 tonn | 5-7 tonn | 7+ tonn | |||||
Startgjald | 2.120 | 2.490 | 3.000 | 3.470 | 3.600 | 3.785 | 3.920 | 4.490 |
Tímagj. Í dagv. | 10.490 | 13.120 | 14.440 | 16.500 | 17.340 | 18.120 | 18.950 | 21.445 |
Tímagj. í næturv | 13.120 | 16.400 | 18.030 | 20.620 | 21.595 | 22.645 | 23.700 | 25.445 |
Kílómetri í dagv. | 320 | 390 | 450 | 520 | 540 | 560 | 590 | 660 |
Kílómetri í næturv. | 480 | 650 | 680 | 760 | 820 | 850 | 880 | 980 |
Næturvinna gildir frá kl. 17.00 – 08.00 á virkum dögum og um helgar.
ATH. Vöruflutningar sem falla undir ADR reglugerðina eru með 15% álag
Allar frekari upplýsingar eru veittar í síma 568 5000 eða ns@sendibilar.is
15. janúar 2025.
Öll verð eru birt með fyrirvara um prentvillur. Nýja Sendibílastöðin áskilur sér rétt til verðbreytinga án fyrirvara.
Nýju Sendibílastöðinni kt. 490269-0969, Knarravogur 4, 104 Reykjavík („stöðin“), er annt um friðhelgi einstaklinga og tekur persónuvernd mjög alvarlega. Nýja Sendibílastöðin leggur mikla áherslu á að meðferð persónuupplýsinga sé ávallt í samræmi við gildandi persónuverndarlöggjöf. Í þessari persónuverndaryfirlýsingu má sjá hvaða persónuupplýsingum Nýja Sendibílastöðin safnar um einstaklinga og í hvaða tilgangi. Þá má hér finna upplýsingar um aðra viðtakendur upplýsinganna og hvað þær eru geymdar lengi. Auk þess má hér finna upplýsingar um á hvaða grundvelli Nýja Sendibílastöðin safnar persónuupplýsingum, hvaða réttinda einstaklingar njóta og fleiri mikilvægar upplýsingar sem tengjast lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018 (hér eftir persónuverndarlög).
Með persónuupplýsingum er átt við allar upplýsingar sem hægt er að rekja til tiltekins einstaklings, svo sem upplýsingar um nafn, kennitölu, heimilisfang, netfang, símanúmer, fjárhag, heilsufar, IP tölu og fleira. Í 2. og 3. tl. 1. mgr. 3. gr. persónuverndarlaga er að finna nánari skilgreiningu á persónuupplýsingum. Með viðkvæmum persónuupplýsingum er átt við persónuupplýsingar sem njóta sérstakrar verndar samkvæmt persónuverndarlögum s.s. upplýsingar um þjóðernisuppruna eða kynþátt, stjórnmála- og trúarskoðanir, stéttarfélagsaðild, erfðagögn, heilsu, kynlíf eða kynhneigð. Með vinnslu persónuupplýsinga er átt við alla meðferð og notkun persónuupplýsinga svo sem söfnun, skráningu, varðveislu, breytingu eða eyðingu. Í 4. tl. 1. mgr. 3. gr. persónuverndarlaga er að finna nánari skilgreiningu á vinnslu persónuupplýsinga.
Hjá Nýja Sendibílastöðinni fer vinnsla persónuupplýsinga fram á lögmætum grundvelli og í samræmi við persónuverndarlög. Nýja Sendibílastöðin gætir jafnframt að því að persónuupplýsingar séu ekki unnar frekar á þann hátt að vinnslan sé ósamrýmanleg upprunalegum tilgangi vinnslunnar. Nýja Sendibílastöðin gætir að því að farið sé að eftirfarandi meginreglum: 1) Að persónuupplýsingar séu unnar með sanngjörnum hætti. 2) Að persónuupplýsingum sé einungis safnað í skýrum tilgangi. 3) Að ekki sé safnað meiri persónuupplýsingum en nauðsynlegt er. 4) Að persónuupplýsingar séu nákvæmar og uppfærðar þegar þörf krefur. 5) Að persónuupplýsingar séu ekki geymdar lengur en þörf er á. 6) Að gætt sé að öryggi persónuupplýsinga með viðeigandi varúðarráðstöfunum.
Sjálfvirk ákvarðanataka er það ferli þegar tekin er ákvörðun með sjálfvirkum hætti án nokkurrar mannlegrar aðkomu. Slíkar ákvarðanir geta verið byggðar á persónusniðum, þ.e. þegar persónuupplýsingar eru notaðar til að meta ákveðna þætti er varða hagi einstaklings, einkum að greina eða spá fyrir um þætti er varða frammistöðu hans í starfi, fjárhagsstöðu, heilsu, o.fl. Dæmi um sjálfvirka ákvarðanatöku væri ef ákvörðun um lánveitingu í gegnum vefsíðu byggði eingöngu á lánshæfismati. Ekki fer fram sjálfvirk ákvarðanataka við vinnslu persónuupplýsinga hjá okkur.
Í starfsemi stöðvarinnar er nauðsynlegt að safna og vinna með persónuupplýsingar um mismunandi hópa einstaklinga. Þær persónuupplýsingar sem stöðin hefur undir höndum geta verið um starfsmenn þess, viðsemjendur, viðskiptavini, setu einstaklinga í stjórnum félaga, eignarhald á fasteignum og aðra þriðju aðila sem nauðsynlegt er að eiga samskipti við.
Nýja Sendibílastöðin safnar ólíkum persónuupplýsingum um mismunandi hópa einstaklinga eftir því um hvaða starfsemi er að ræða. Undir öllum kringumstæðum leitast Nýja Sendibílastöðin við að safna einungis þeim persónuupplýsingum sem nauðsynlegar eru með hliðsjón af tilgangi vinnslunnar. Í ákveðnum tilvikum þurfum að safna viðkvæmum persónuupplýsingum, svo sem upplýsingum um heilsufar og aðild að stéttarfélagi starfsmanna. Sérstök aðgát er höfð við meðferð slíkra upplýsinga. Við söfnum og vinnum með eftirfarandi flokka persónuupplýsinga um umsækjendur, viðskiptavini, birgja, fyrrverandi og núverandi starfsfólk: • grunnupplýsingar (nafn, heimilisfang, netfang o.fl.) • andlitsmynd • stéttarfélagsaðild • bankaupplýsingar • skattaupplýsingar • upplýsingar
um meðlagsgreiðslur
um verkefnastöðu
Nýja Sendibílastöðin safnar og vinnur með eftirfarandi flokka persónuupplýsinga um starfsmenn, leigutaka og birgja:
Við notum m.a. tölvupóst til að eiga í samskiptum við umsækjendur, viðskiptavini og tengiliði birgja og söfnum í þeim tilgangi tengiliðaupplýsingum ásamt samskiptunum sjálfum.
Í þeim tilgangi að gera samninga við landeigendur og aðra leigutaka, söfnum við grunnupplýsingum um þá.
Í þeim tilgangi að senda út reikninga og innheimta greiðslur söfnum við grunnupplýsingum um leigutaka ásamt reikningsupphæð.
Í þeim tilgangi að halda skrá um núverandi og fyrrverandi viðskiptavini (birgja) okkar ásamt viðskiptasögu, söfnum við grunnupplýsingum um þá.
Tilgangurinn með söfnun upplýsinganna er að: • Geta efnt samningsskyldu, til dæmis við starfsmenn. • Geta veitt ákveðna þjónustu. • Gæta að lögmætum hagsmunum. • Gæta að lögmætum hagsmunum annarra. • Uppfylla lagaskyldu.
Nýja Sendibílastöðin safnar og vinnur persónuupplýsingar á eftirfarandi lagagrundvelli: ● Til að uppfylla lagaskyldu. ● Til að uppfylla samningsskyldu. ● Á grundvelli samþykkis einstaklinga. ● Til að unnt sé að stofn, hafa uppi eða verja réttarkröfu.
Stöðin geymir persónuupplýsingar einungis í þann tíma sem nauðsynlegt er fyrir fyrirtækið að hafa þær undir höndum. Þegar ekki er þörf fyrir að hafa persónuupplýsingar undir höndum lengur eyðir fyrirtækið þeim með öruggum hætti.
Þá safnar Nýja Sendibílastöðin að meginstefnu til persónuupplýsingum beint frá þeim einstaklingum sem um ræðir en styðst einnig við opinberar skrár og upplýsingar frá öðurm stjórnvöldum í vinnslu sinni. Þegar og ef upplýsingum er safnað frá öðrum þriðju aðilum reynir stofnunin eftir fremsta megni að upplýsa viðkomandi um það.
Nýja Sendibílastöðin miðlar persónuupplýsingum til þriðju aðila sem eru ráðnir af stofnuninni til að vinna fyrir fram ákveðna vinnu, svo sem þjónustuveitendur, sem sjá um að geyma gögn meðal annars og verktakar. Í þeim tilfellum gerir stofnunin vinnslusamning við viðkomandi aðila. Slíkur samningur kveður meðal annars á um skyldu hans til að fylgja fyrirmælum stofnunarinnar um meðferð persónuupplýsinga og er honum óheimilt að nota þær í öðrum tilgangi. Jafnframt ber honum skylda til að tryggja öryggi upplýsinganna með viðeigandi hætti. Í öðrum tilvikum getur einnig verið nauðsynlegt fyrir stöðina að miðla persónuupplýsingum til þriðju aðila, til dæmis þegar skylda stendur til þess samkvæmt lögum
Nýja Sendibílastöðinni er kunnugt um að ströng skilyrði gilda um flutning persónuupplýsinga til ríkja sem staðsett eru utan Evrópska efnahagssvæðisins. Nýja Sendibílastöðin gerir það ekki undir neinum kringumstæðum nema fullnægjandi heimild standi til þess samkvæmt lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018.
Nýja Sendibílastöðin leitast við að grípa til viðeigandi tæknilegra og skipulegra öryggisráðstafana til að tryggja öryggi persónuupplýsinga í samræmi við lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018. Felur það meðal annars í sér að aðeins þeir starfsmenn hafa aðgang að persónuupplýsingum sem þess þurfa starfs síns vegna. Auk þess stuðlar stöðin að aukinni vitundarvakningu hjá starfsmönnum með reglulegri þjálfun og fræðslu um hvernig gæta skal að öryggi persónuupplýsinga.
Hafi einstaklingar veitt samþykki fyrir vinnslu tiltekinna persónuupplýsinga eiga þeir rétt samkvæmt lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018 að afturkalla samþykki sitt hvenær sem er. Sá réttur hefur þó ekki áhrif á lögmæti þeirrar vinnslu sem fram fór áður en samþykki var afturkallað. Þá njóta þeir einnig annarra réttinda, svo sem réttar til að vera upplýstir um vinnslu, réttar til aðgangs að gögnum, réttar til að fá rangar eða villandi upplýsingar leiðréttar, réttar til að persónuupplýsingum verði eytt, réttar til að hindra að unnið verði með persónuupplýsingar um þá og réttar til að flytja eigin upplýsingar. Hafa skal í huga að réttindi einstaklinga eru ekki alltaf fortakslaus og kunna að vera háð ýmsum skilyrðum.
Nafn: Nýja Sendibílastöðin Heimilisfang: Knarravogi 4, 104 Reykjavík. Netfang: ns@sendibilar.is Símanúmer: 568 5000.
Hafi einstaklingar frekari spurningar um persónuverndaryfirlýsingu þessa geta þeir ávallt haft samband við persónuverndarfulltrúann okkar. Þetta eru samskiptaupplýsingarnar hjá honum: Nafn: Dattaca Labs Iceland ehf. Heimilisfang: Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík. Netfang: dpo@dattacalabs.com.
Símanúmer: 517 3444.
Dragi einstaklingar í efa að Nýja Sendibílastöðin meðhöndli persónuupplýsingar þeirra í samræmi við lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018 hafa þeir rétt til að senda erindi til Persónuverndar (www.personuvernd.is).
Persónuverndaryfirlýsing þessi getur frá einum tíma til annars tekið breytingum í samræmi við breytingar á viðeigandi lögum og reglugerðum eða ef breytingar verða gerðar á því hvernig Nýja Sendibílastöðin vinnur með persónuupplýsingar. Verði breytingar gerðar á persónuverndaryfirlýsingu þessari verður tilkynnt um slíkt á heimasíðu stofnunarinnar www.sendibilar.is
Eftir að breytingar hafa verið gerðar á persónuverndaryfirlýsingu taka þær gildi þegar uppfærð útgáfa hefur verið birt. Persónuverndaryfirlýsing þessi var samþykkt 13.09.2021.